Sakamál
Ég hef mikla og fjölbreytta reynslu af málflutningi sakamála fyrir dómstólum og refsimeðferð mála hjá skattayfirvöldum er varða skattskil einstaklinga og fyrirtækja.
Einkamál
Ég aflaði mér málflutningsréttinda fyrir héraðsdómstólum árið 2018 og tek að mér málflutning á öllum sviðum einkamála. Á vefsíðunni Bótamál.is má lesa nánar um þjónustu sem við Arnar Vilhjálmur Arnarsson, lögmaður, veitum á sviði skaðabótaréttar.
Lögfræðiráðgjöf
Ég tek að mér almenna lögfræðilega ráðgjöf á öllum sviðum lögfræðinnar. Hvort sem um skjala- eða samningagerð er að ræða, samskipti við stjórnvöld eða aðra fyrir hönd skjólstæðinga eða þörf er á aðstoð lögmanns vegna lögfræðilegra álitamála er markmiðið að veita bestu þjónustu sem völ er á.